| Héraðsskjalasafn Árnesinga Austurvegi 2 pósthólf 2 802 Selfoss Sími: 482 1259 netfang: thorsteinn@heradsskjalasafn.is og skammstöfun: HérÁrn. Safnið er opið mánudaga, þriðjudaga og föstudaga kl. 14:00-18:00 og fimmtudaga kl. 14:00-19:00 Skjalavörður: Þorsteinn Tryggvi Másson, heimasími 483 4389 og farsími 861 5092. "Héraðsskjalasafn Árnesinga er sjálfstæð skjalavörslustofnun sem lýtur yfirstjórn Héraðsnefndar Árnesinga." segir í 1. grein samþykktar frá 1991. Það lýtur faglegri yfirumsjón Þjóðskjalasafns Íslands sbr. lög nr. 66/1985 og reglugerð nr. 283/1994 þar sem verksvið héraðsskjalasafna er skilgreint. Héraðsskjalasafn Árnesinga safnar skilaskyldum skjölum sveitarstjórna og annarra opinberra stofnana í Árnesþingi, sem ekki ber að afhenda skjöl sín til Þjóðskjalasafns Íslands. Þá safnar það einnig skjölum einstaklinga, félaga og fyrirtækja, ljósmyndum og öðrum gögnum sem varða sögu héraðsins s.s. kirkjubókum á örfilmum. Gögn þessi skal safnið skrá og gera aðgengileg fræðimönnum og öðrum notendum. Héraðsnefnd Árnesinga skipar stjórn safnsins, 3 aðalmenn og 3 til vara. Aðalstjórn skipa: Kjartan Björnsson formaður Sveinn Steinarsson Tryggvi Steinarsson |