Saga Héraðsnefndar Árnesinga
Þeir annmarkar voru á sýslunefndum að bæjarfélög gengu við stofnun sjálfkrafa úr sýslunefnd, og við stofnun Selfosskaupstaðar 1978 voru tengsl Selfoss við starf sýslunefndarinnar rofin. Munaði miklu um brotthvarf stærstu sveitarfélaganna. Einnig var umdeilt að sýslunefndarmenn voru kosnir beinni kosningu, en ekki af sveitarstjórnum. Þeir voru þá allt eins án nokkurra tengsla við sveitastjórnir. Sveitarstjórnir voru sjálfráðar um það hvort þær gengu í Héraðsnefnd Árnesinga, en svo fór að öll sveitarfélög í Árnesþingi gerðust stofnendur hennar. Í upphafi voru héraðsnefndarmenn 22.
Fyrsti oddviti Héraðsnefndar Árnesinga var Sigríður Jensdóttir, sem þá var einnig forseti bæjarstjórnar Selfoss. Oddviti stýrði einnig héraðsráði ásamt tveimur héraðsráðsmönnum öðrum, og var annar fyrst valinn úr hópi dreifbýlismanna, en hinn úr þéttbýli. Héraðsráð kemur saman allt að því mánaðarlega, undirbýr mál í hendur héraðsnefndar en afgreiðir sum hin smærri mál. Héraðsnefnd kemur að jafnaði saman tvisvar á ári. Vorfundur tekur oft tvo daga og er þá fundað á góðum stað í héraðinu. Á þeim fundi er ársreikningur héraðsnefndar ræddur og afgreiddur. Haustfundurinn er yfirleitt haldinn í desemberbyrjun og þar er gerð bráðabirgðaáætlun fjárlaga sem síðan eru fullgerð og afgreidd á vorfundi.
Þann 15. desember 1989 var samningur um Héraðsnefnd Árnesinga samþykktur af öllum héraðsnefndarmönnum. Um fundarsköp gilda ákvæði sveitarstjórnarlaga frá 1986, og er sérstaklega tekið fram í samningnum að samþykki allra sveitarfélaga þurfi til að ákvarðanir héraðsnefndar um fjárfestingar, eignabreytingar, ólögbundin útgjöld eða skuldbreytingar öðlist gildi. Aðildarsveitarfélög veita árlega fjárframlögum til nefndarinnar á grundvelli fjárhagsáætlunar hennar og bera einfalda ábyrgð á fjárhagsskuldbindingum. Skiptist ábyrgðin í hlutfalli við fólksfjölda næsta árs á undan. Héraðsnefnd var gert að ákveða hver tæki að sér að annast fjárreiður og bókhald nefndarinnar. Fól hún í upphafi Selfossbæ, nú Árborg, þetta starf sem hefur verið unnið með lágmarkskostnaði. Oddviti Héraðsnefndar er jafnframt framkvæmdastjóri hennar, og annast allar bréfaskriftir, fundarboð á héraðsráðs- og héraðsnefndarfundi og kemur fram fyrir nefndarinnar hönd út á við.
Um verkefni sín hefur Héraðsnefnd Árnesinga tiltölulega frjálsar hendur. Lögbundin er þó umfjöllun hennar um sýsluvegaáætlun og afgreiðslu hennar. Héraðsnefnd hefur og yfirstjórn á mörgum verkefnum á menningarsviði og annast fjárveitingar til Byggða- og náttúrusafns Árnesinga og Hússins Eyrarbakka, Listasafns Árnesinga, Héraðsskjalasafns Árnesinga og hluta af fjárveitingum til Bæjar- og héraðsbókasafnsins á Selfossi á móti Árborg. Tónlistarskóli Árnesinga er sjálfstæð rekstrareining sem borin uppi af sveitarfélögunum, en héraðsnefnd kýs í skólanefnd og fer með æðstu stjórn skólans. Mörg erindi berast héraðsnefnd vegna smærri eða skemmri verkefna, sem hún hefur stutt.
Núverandi oddviti Héraðsnefndar Árnesinga er Gunnar Þorgeirsson. Í héraðsráði með honum eru Aldís Hafsteinsdóttir og Ari Thorarensen. Fjárhaldsmaður nefndarinnar er Ingibjörg Garðarsdóttir fjármálastjóri hjá Sveitarfélaginu Árborg.