12.5.2009 11:02
49. fundur, 12.05.2009

49. fundur

aukafundur, haldinn að Laugarvatni

12. maí 2009.

Ragnheiður Hergeirsdóttir oddviti Héraðsnefndar Árnesinga setti fundinn og bauð fulltrúa velkomna.  Öll sveitarfélög nema Ölfus sendu fulltrúa sína á þennan aukafund, sem ákveðinn var á síðasta fundi nefndarinnar í haust.  Fór oddviti þess á leit við fundinn að fyrir yrði tekin fundargerð frá Búfjáreftirlitsnefnd, dags. 12.03.09, sem ekki lá fyrir í útsendum fundargögnum eða dagskrá, og gerðu fulltrúar ekki athugasemdir við það.  Margeir Ingólfsson oddviti Bláskógabyggðar bauð fundarmenn velkomna að Laugarvatni og drap á fornar hefðir í sætaskipan á fundum héraðsnefndar. 

2.     Fundargerðir héraðsráðs nr. 158-161 lagðar fram til staðfestingar.  Í þeim er einkum fjallað um endurskoðun fjárhagsáætlana stofnana sem heyra undir HÁ.  Héraðsráð, stjórnir,  forstöðumenn stofnana og fjárhagsnefnd lögðust á eitt og fóru yfir fjárhagsáætlanir stofnana með það fyrir augum að halda útgjöldum í algjöru lágmarki.

Helstu niðurstöður í fundargerðum þessum:

Byggðasafn Árnesinga:

Héraðsráð leggur til að fjárhagsáætlun Byggðasafns Árnesinga árið 2009 verði hækkuð um kr. 665.000 frá afgreiðslu héraðsnefndar í nóvember sl. eða í kr. 17.900.000.

Tónlistarskóli Árnesinga:

Héraðsráð leggur til að samþykkt fjárhagsáætlun Tónlistarskóla Árnesinga árið 2009 verði hækkuð um kr. 351.957 eða í kr. 141.528.261.  Jafnframt er lagt til að tillaga skólans um að nýta kr. 8.542.000 af eigin fé skólans til greiðslu upp í áætlun ársins verði samþykkt.

Listasafn Árnesinga:

Héraðsráð leggur til að fjárhagsáætlun safnsins verði óbreytt frá samþykkt haustfundar 2009.  Í fjárhagsáætlun safnsins er gerty ráð fyrir styrkjum að upphæð kr. 4.200.000, - styrkjum sem eru ekki í hendi.  Á tímum sem þessum er mikil óvissa um styrki og er það mat héraðsráðs að stjórn safnsins, forstöðumaður og héraðsráð verði að vera vakandi yfir rekstri safnsins á haustdögum vegna þessa.  Ef safnið fær ekki þessa styrki er rekstur þess í uppnámi.

Héraðsskjalasafn Árnesinga:

Héraðsráð leggur til að fjárveiting frá haustfundi héraðsnefndar í nóvember sl. kr. 10.330.000 verði óbreytt.  Héraðsráð leggur jafnframt til að samþykkt verði tillaga safnsins um að nýta kr. 1.382.391 af eigin fé safnsins til greiðslu upp í áætlun ársins.

 

 

 Efnahagsmál og ábyrgð sveitarfélaganna var mjög til umræðu undir þessum lið, menn ítrekuðu nauðsyn þess að jafnræðis og sanngirni væri gætt eins og mögulegt væri.  Ávallt þurfi að leita sparnaðarleiða í nánu samstarfi starfsfólks og stjórnenda stofnana.  Þótti þetta einkum til fyrirmyndar hjá Tónlistarskóla Árnesinga, eins og nánar verður vikið að síðar.  Sú skoðun kom fram, að  boða þyrfti til oddvitafundar um framtíðarhorfur; hug, vilja og getu sveitarfélaganna til að sinna málaflokkum sem Héraðsnefnd Árnesinga hefur innan sinna vébanda.

Á fundinn komu fulltrúar Tónlistarskóla Árnesinga og gerðu stuttlega grein fyrir þeirri leið sem farin var í TÁ í sparnaðarskyni.  Þ.e. að eins lítil áhrif yrðu á nemendur og unnt væri í kennslu og daglegu starfi skólans.  Skólagjöld yrðu til að mynda óbreytt. Allir starfsmenn skólans komu að þessari stefnumótun.

Til máls tóku auk oddvita þau Sigurður Ingi Jóhannsson, Herdís Þórðardóttir, Eyþór Arnalds, Margrét Katrín Erlingsdóttir. Eyþór H. Ólafsson, Margeir Ingólfsson og Aldís Hafsteinsdóttir.  Að loknum umræðum voru ofangreindar fundargerðir staðfestar samhljóða.

Oddviti þakkaði sérstaklega fjárhagsnefnd HÁ, svo og stjórnum og forstöðumönnum stofnana, sem tókust á hendur endurskoðun og áætlanagerð við óvenjulegar aðstæður – einstakan samstarfsvilja og elju í erfiðu verkefni.

3.      Fundargerð búfjáreftirlitsnefndar frá 12.03.09 lögð fram.  Nokkrar umræður urðu um forðagæslu og eftirlit.  Nauðsynlegt þótti að auka skilvirkni og eftirfylgni – s.s. að sveitarfélög innheimti gjald af mönnum sem ekki skila skýrslum innan ákveðinna tímamarka.  Fjallskilamál hafa verið til endurskoðunar víða til sveita, og þurfa að vera tekin fyrir á haustfundi héraðsnefndar.  Héraðsráði falið að undirbúa umfjöllun um málið þá.

Til máls tóku auk oddvita Sigurður Ingi Jóhannsson, Aldís Hafsteinsdóttir, Margrét Katrín Erlingsdóttir, Ari Thorarensen, Eyþór Arnalds, Margeir Ingólfsson, Ingvar Ingvarsson  og Aðalsteinn Sveinsson.

Nefndin leggur einnig  til að Loftur Þorsteinsson frá Haukholtum verði skipaður markavörður austan vatna – þ.e. austan Ölfusár, Sogs og Hvítár, í stað Arnórs Karlssonar, sem lést í vetur og var það, svo og fundargerðin í heild, samþykkt samhljóða.

4.     Breytingartillaga við samning um Héraðsnefnd .  Fundarmenn höfðu fengið tillögurnar til skoðunar í fundargögnum.  Margrét Katrín Erlingsdóttir lagði fram breytingartillögu við 3. gr. svohljóðandi:  Formaður hverrar stofnunar skal vera kjörinn héraðsnefndarmaður.“  Nokkrar umræður urðu um þetta atriði, og voru lyktir þær að Margrét Katrín dró tillöguna til baka.  Var fyrri tillaga héraðsráðs þá borin upp ásamt öðrum fyrirliggjandi breytingum á samningnum, og tillagan samþykkt samhljóða af héraðsnefndarmönnum, og verður send sveitarfélögunum til meðferðar skv. 15. gr. en þar segir:  Til að breytingar á samningnum öðlist gildi þurfa ¾ sveitarstjórna aðildarsveitarfélaganna að samþykkja þær. Til máls tóku Margrét Katrín Erlingsdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson, Aldís Hafsteinsdóttir, Herdís Þórðardóttir, Margeir Ingólfsson, og oddviti.

5.     Fundargerðir Byggðasafns Árnesinga frá 9.3.2009; Héraðsskjalasafns Árnesinga frá 25. 02.09 staðfestar.  Í framhaldi af því var rætt um að betra kerfi þyrfti að vera á útsendingu fundargerða stofnananna til sveitarfélaganna/héraðsnefndarmanna.  Ritari mun hafa samband við stofnanirnar og biðja um skil á fundargerðum sem verða þá framvegis sendar héraðsnefndarfulltrúum í tölvupósti og einnig  inn á heimasíðuna heradsnefndarnesinga.is. 

6.     Almannavarnir Árnessýslu – fundargerð frá 11. maí 2009 - tillaga að fjárhagsáætlun.  Samþykkt samhljóða eins og hún liggur fyrir.

7.     Tillaga héraðsráðs vegna skýrslu um stefnumótun í safnamálum:

„Í ljósi þess efnahagsástands sem nú ríkir á Íslandi leggur héraðsráð til að öllum ákvörðunum um frekari tillögur úr skýrslunni „Stefnumótun í safnamálum fyrir Héraðsnefnd Árnesinga“ verði frestað til haustfundar héraðsnefndar.  Mennta- og menningarmálanefnd verði falið að undirbúa umræðu um skýrslu R3 Ráðgjafar um stefnumótun í safnamálum héraðsnefndar og koma með tillögu að afgreiðslu þeirra tillagna sem fram koma í skýrslunni.

Héraðsráð mun hér eftir sem hingað til vinna áfram að aukinni skilvirkni og samstarfi safna í sýslunni með ráðdeild og skynsemi að leiðarljósi.

Í þessu sambandi er rétt að geta þess að í samræmi við samþykkta tillögu Allsherjarnefndar frá haustfundi héraðsnefndar 2008 þá hefur héraðsráð fundað með forstöðumönnum og stjórnarformönnum safna Héraðsnefndar Árnesinga, en til framtíðar mun héraðsráð funda með þessum aðilum a.m.k. einu sinni á milli háraðsnefndarfunda.

Á sama fundi héraðsnefndar var samþykkt að Bæjar- og héraðsbókasafnið í Árborg yrði forystusafn meðal almenningsbókasafna í Árnessýslu en að safnið yrði frá og með 1. janúar 2009 rekið af eignaraðila sínum, Árborg.  Þetta hefur einnig gengið eftir“.

Samþykkt samhljóða.

8.     Héraðsnefnd Árnesinga hefur borist beiðni frá Fræðsluneti Suðurlands dags. 26.3.09 þar sem sótt er um styrk að upphæð 50.000 vegna ráðstefnu um Pál Lýðsson, bónda og fræðimann í Litlu-Sandvík.  Einnig erindi frá Bókaútgáfunni Hólum, dags. 15.3.09 þar sem farið er fram á 100.000 kr. styrk vegna útgáfu bókar hans, sem nánast var tilbúin til prentunar er hann lést, og inniheldur sögur og sagnir úr Árnessýslu.  Til máls tóku allflestir fundarmenn.  Eftirfarandi tillaga samþykkt samhljóða:

„Héraðsnefnd samþykkir að styrkja málþing um Pál Lýðsson og útgáfu bókar í minningu hans.  Héraðsnefnd Árnesinga er það bæði ljúft og skylt að heiðra minningu Páls með þessum hætti, enda var framlag hans í þágu héraðsnefndar og sveitunga í Árnessýslu  bæði óeigingjarnt og einstakt“.

9.     Kynningar fulltrúa Byggðasafnsins og Héraðsskjalasafnsins á arfi sem söfnunum hefur hlotnast.

Björn Pálsson og Lýður Pálsson sögðu frá því að Helgi Ívarsson í Hólum hefði arfleitt ofangreind tvö söfn að öllum eigum sínum.  Er þarna um mikla fjármuni að ræða, íbúð, bifreið, alla lausamuni, bókasafn, ljósmyndir, frímerkjasafn og myntsafn.  Ekki er enn ljóst hvert heildarverðmæti gjafarinnar er, en telja þeir að í fljótu bragði komi a.m.k. 25 milljónir í hlut hvors safns.  Voru fundarmenn allir á einu máli um mikinn höfðingsskap gefanda og er eindreginn vilji héraðsnefndar, forstöðumanna og stjórna safnanna að uppfylla öll eðlileg skilyrði sem erfðaskráin felur í sér.  Gengið verði frá öllu málinu á faglegan, lögformlegan hátt; frágangur á erfðafjárskýrslu verði unninn af lögmanni, ekki síst þar sem þetta er svo stór gjöf, óvenjuleg og vandmeðfarin.  Var samþykkt samhljóða að fela héraðsráði að hlutast til um frágang og úrvinnslu á  þessu stóra verkefni. 

Eftirfarandi tillaga að bókun lögð fram:

„Helgi Ívarsson, Hólum, Stokkseyrarhreppi, hefur arfleitt Héraðsskjalasafn Árnesinga og Byggðasafn Árnesinga að öllum eigum sínum með þeim frávikum sem tilgreind eru í erfðaskrá.

Héraðsnefnd metur mikils þann hlýhug og stórmennsku sem Helgi sýndi með þessum rausnarlega arfi.  Það er einlægur vilji og metnaður Héraðsnefndar Árnesinga að minningu Helga sé sýndur sá sómi sem tilhlýðilegt er“.

Samþykkt samhljóða.

10.  Önnur mál.

Ekki var fleira tekið til umræðu.  Björn Pálsson kvaddi sér hljóðs, þar sem hann hyggur nú á að hætta störfum í haust sem héraðsskjalavörður.  Þakkaði hann héraðsnefndarmönnum samstarfið á liðnum árum.

Ragnheiður Hergeirsdóttir þakkaði Birni mikið starf í Héraðsskjalasafninu fyrir hönd Héraðsnefndar Árnesinga, og óskaði honum velfarnaðar.

Þakkaði síðan héraðsnefndarmönnum ánægjulegan dag og lauk fundinum með góðum hádegisverði á fundarstaðnum, Lindinni á Laugarvatni.

 

                                                            Halla Guðmundsdóttir asar@uppsveitir.is

                                                            ritari Héraðsnefndar Árnesinga.

 

 

Eftirtaldir héraðsnefndarmenn

sátu fundinn

 

Herdís Þórðardóttir                                            herdis@hsu.is

Elfa Dögg Þórðardóttir                                       elfa@hveragerdi.is

Eyþór Arnalds                                                          arnalds@gmail.com

Ari Thorarensen                                                                       arith@simnet.is

Eyþór H. Ólafsson                                                  eho@eimskip.is

Ingvar Ingvarsson                                                 ingvar@gogg.is

Aðalsteinn Sveinsson                                        adalsteinn@floahreppur.is

Gunnar Örn Marteinsson                                oddviti@skeidgnup.is

Sigurður Ingi Jóhannsson                                sigurdingi@simnet.is

Þorvaldur Guðmundsson                                thorvald@fsu.is     thorvald@arborg.is

Jón Hjartarson                                                        jonogaslaug@simnet.is

Margrét K. Erlingsdóttir                                                      maddy@maddy.is

Ragnheiður Hergeirsdóttir                             rh@arborg.is

Aldís Hafsteinsdóttir                                          aldis@hveragerdi.is

Margeir Ingólfsson                                               margeir@blaskogabyggd.is

Ingibjörg Garðarsdóttir                                                      inga@arborg.is                     





Til baka    






Deila
Til baka


Hrasnefnd rnesinga

Austurvegi 2, 800 Selfoss heradsnefnd@heradsnefndarnesinga.is