|
19.8.2011 13:44 54. fundur, 6. maí 2011 Héraðsnefnd Árnesinga 54. fundur haldinn að Hótel Örk í Hveragerði 6. maí 2011. Oddviti, Gunnar Þorgeirsson setti fundinn kl. 9.00 og bauð fundarmenn velkomna. Því næst afhenti hann ritara fallegan blómvönd í tilefni merkisafmælis, og var sú gjöf mikils metin. Síðan hófst hefðbundin dagskrá. Gögn lágu fyrir útprentuð á fundinum, en höfðu áður verið send í tölvupósti á tilsettum tíma.1. Fundargerðir Héraðsráðs nr. 168, 169 og 170 kynntar. Ný heimasíða er í vinnslu. Fundargerðirnar staðfestar. Til máls tók Ari Thorarensen auk oddvita. 2. Fundargerðir stofnana Héraðsnefndar: Tónlistarskóli Árnesinga nr. 155 og 156; Aldís Hafsteinsdóttir ræddi nýtt samkomulag um kostnaðarhlutföll sveitarfélaga og ríkis vegna tónlistarnáms, (um réttindi og skyldur sveitarfélaganna gagnvart tónlistarnemum) sem mun von bráðar líta dagsins ljós. Héraðsskjalasafn Árnesinga frá 15. nóvember, 26. janúar og 1. mars; Listasafn Árnesinga frá 26. apríl; Til máls tók Sveinn Steinarsson. Byggðasafn Árnesinga 3. fundur 19 apríl. Fundargerðir staðfestar. 3. Ársreikningar og ársskýrsla stofnana: Sandra Dís Hafþórsdóttir drap á nokkur atriði í reikningunum, ítrekaði nauðsyn þess að útlit og aðferðarfræði væri samræmd við gerð slíkra skjala. Undir það tóku fundarmenn. Fjárhaldsmanni falið að sjá um að svo sé. Einnig lagðir fram reikningar Héraðsnefndar Árnesinga. Til máls tóku Eyþór Arnalds, Aldís Hafsteinsdóttir, Helgi Haraldsson, Eggert Valur Guðmundsson, Ari Thorarensen, Eyþór H. Ólafsson, Gunnar Þorgeirsson og Ingibjörg Garðarsdóttir. . Form. fjárhagsnefndar leggur til að reikningar stofnana og héraðsnefndar verði samþykktir og var það gert. a) Ávörp forstöðumanna stofnana sem heyra undir Héraðsnefnd Árnesinga. Einnig framlagðar skriflegar skýrslur stofnana. Fyrstur tók til máls Robert Darling. Tónlistarskólinn berst hetjulega við að láta enda ná saman í rekstri, skólagjöld hafa ekki hækkað í þrjú ár. Aðsókn er mikil og markverður árangur. Nú hillir undir samkomulag um kostnaðarskiptingu og/eða ábyrgð svf. og ríkis varðandi tónlistarnám. Til máls tók Ari Thorarensen auk oddvita. b) Þorsteinn Tryggvi Másson tók síðan til máls um Héraðsskjalasafn Árnesinga. Aðsókn er mjög mikil og ritgögn og ljósmyndir streyma til safnsins sem aldrei fyrr. Fyrirspurnir og erindi fólks hafa aukist jafnt og þétt síðustu tvö ár. Málalyklar sveitarfélaga vel á veg komnir. Við blasir rík þörf safnsins fyrir stærra húsnæði. Forstöðumenn héraðsskjalasafna gera alvarlegar athugasemdir við opinberar reglur Þjóðskjalasafns um skjalavörslu sveitarfélaga. Telja það setja héraðsskjalasöfnum afar þröngar skorður, og lítill skilningur þar á mikilvægi slíkra safna í héruðum landsins. Til máls tóku Gunnar Örn Marteinsson og Elfa Dögg Þórðardóttir auk oddvita. c) Ásta Stefánsdóttir tók til máls fyrir Almannavarnir Árnessýslu. Áhættumat og áhættugreining fyrir umdæmið var unnið á árinu.Verður það brátt aðgengilegt á tölvu. Nauðsynlegt er að hafa áttað sig á hættu og slysagildrum áður en óhöpp, slys eða hamfarir af náttúru- eða mannavöldum eiga sér stað, til að geta brugðist rétt við. d) Lýður Pálsson ávarpaði fundinn og sagði frá málefnum Byggðasafns Árnesinga. Byrjaði hann á því að sýna fundarmönnum mynd frá 1911, þar sem saman eru komnir 17 skeggjaðir karlar, sem sátu í Sýslunefnd Árnessýslu. Þessi mynd er upptakturinn að sumarsýningu Byggðasafnsins. Ræddi hann síðan almenn málefni safnsins. Breytingar fyrirhugaðar á styrkjafyrirkomulagi hins opinbera til slíkra stofnana. Beinir styrkir lækka, en verkefnastyrkir hækka. Þetta gæti leitt til breytinga á starfsháttum byggðasafna. Minjasafn í Gröf einnig rætt. Nánar tekið fyrir undir liðnum Önnur mál, ásamt umræðu um jarðskjálftabætur til handa Byggðasafninu. Til máls tóku Elfa Dögg Þórðardóttir, Aldís Hafsteinsdóttir, Ragnar Magnússon, Gunnar Örn Marteinsson, Drífa Kristjánsdóttir, Sveinn Steinarsson, Stefán Jónsson, Ari Thorarensen og oddviti. Gert var hádegisverðarhlé á fundinum en að því loknu var fundi fram haldið: 4. Nefndarlaun ákv. í samræmi við samþykkta tillögu í fundargerð héraðsráðs nr. 170 frá 18. apríl 2011, hér fyrir framan. 5. Erindi frá Tónlistarskóla Árnesinga, þar sem óskað er eftir aukafjárveitingu sem nemur 3.200.000 vegna veikinda kennara. Samþykkt sem viðbót við framlag ársins 2011. 6. Byggingarsjóður FSu. Sveitarfélögin hafa undanfarin ár greitt í framkvæmdasjóð til byggingar verknámshúss við FSu, en ekki hefur enn verið gefið grænt ljós á að hefja framkvæmdir af ríkisins hálfu. Sjóðurinn nemur núna um 130 milljónum kr. Svf. munu greiða 40% framkvæmdarinnar þegar þar að kemur. Til máls tóku auk oddvita: Stefán Jónsson, Ari Thorarensen, Elfa Dögg Þórðardóttir, Helgi Haraldsson, Eggert Valur Guðmundsson, Aðalsteinn Sveinsson, Drífa Kristjánsdóttir og Gunnar Örn Marteinsson. Aldís Hafsteinsdóttir lagði fram eftirfarandi tillögu: „ Héraðsnefnd harmar þann seinagang sem virðist vera á ákvörðun ríkisvaldsins um byggingu verknámshússins Hamars við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Nefndin samþykkir að knýja á um afgreiðslu ríkisins nú þegar. Liggi ákvörðun ekki fyrir þann 1. ágúst næstkomandi, mun héraðsnefndin óska eftir endurgreiðslu á þeim fjármunum sem lagðir hafa verið til hliðar vegna byggingarinnar. Þegar ákvörðun ríkisins liggur fyrir, munu sveitarfélögin sem að héraðsnefnd standa, að sjálfsögðu standa við skuldbindingar sínar vegna viðbyggingarinnar.“ Samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Elfa Dögg Þórðardóttir og Gunnar Örn Marteinsson sátu hjá. 7. Skipan fulltrúa í endurskoðunarnefnd um fjallskil í Landnámi Ingólfs. Ingólfur Jónsson á Villingavatni skipaður í stað Björns í Björk. 8. Endurskoðun fjallskilasamþykktar Árnessýslu austan vatna nr. 408/1998. Ari Thorarensen skipaður í endurskoðunarnefnd frá Afréttarmálafélagi Flóa og Skeiða, síðan skipi Hrunamannahreppur, fyrrum Gnúpverjahreppur, Bláskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshreppur hver sinn fulltrúa. Ari kalli nefndina saman þegar skipan liggur fyrir. 9. Önnur mál. Allir fundarmenn tóku almennan þátt í umræðum um eftirtalin mál, að meira eða minna leyti: a) Málefni Alviðru og Öndverðarness. Héraðsráði falið að leita eftir/vinna að því að eigninni verði skipt upp. Samþykkt samhljóða. b) Refa- og minkaveiðar. Fundarmenn telja nauðsynlegt að samræma gjaldskrá sveitarfélaganna í þessum málaflokki og leggja fyrir haustfund. c) Minningarsjóður Helga Ívarssonar. Nokkuð rætt um ráðstöfun þessara fjármuna. Samráðshópur settur á laggirnar varðandi þetta mál, sem ætlað er að hafa hönd í bagga með, hvernig safnstjórar viðkomandi safna munu ráðstafa fénu. Það skal ekki notast í almennan rekstur og ekki má heldur verða annar kostnaðarauki að. Hópinn skipa: Eva Marín Hlynsdóttir, Kjartan Björnsson, Aðalsteinn Sveinsson, Sveinn Steinarsson og Sandra Dís Hafþórsdóttir sem boðar til fundar. d) Minjasafn í Gröf. Málefnið rætt frá ýmsum hliðum. Ákveðið að fela stjórn Byggðasafns Árnesinga að vinna tillögu um fyrirkomulag safnsins og aðkomu Hrunamannahrepps í samvinnu við eigendur og hreppinn. e) Jarðskjálftabætur í Byggðasafni. Ari Thorarensen sagði frá starfi nefndar sem unnið hefur að niðurstöðu í máli þessu. Ekki er lokið bótamáli vegna jarðskjálftans. Himinn og haf er milli mats VS (Verkfr.st.Suðurl.) og Verkíss (Viðl.tr.Íslands). Hægt er að skjóta málinu til yfirmats, sem væri endanlegt, hvernig sem það félli. . Menn voru almennt sammála um að skynsamlegast virtist að samþykkja mat Verkíss, 27,6 millj. kr, sem nota ætti til uppbyggingar, en ekki til rekstrar. Ekki voru fleiri mál á dagskrá að þessu sinni. Oddviti þakkaði góðan fund og ánægjulegar móttökur í Hveragerði. Boðið var upp á skoðunarferð um bæinn með viðkomu í Listasafni. Halla Guðmundsdóttir ritari Héraðsnefndar Árnesinga. asar@uppsveitir.is Eftirtaldir sátu fundinn: Ragnar Magnússon ragnar@fludir.is Drífa Kristjánsdóttir torfast@simnet.is Gunnar Örn Marteinsson oddviti@skeidgnup.is Aðalsteinn Sveinsson adalsteinn@floahreppur.is Arna Ír Gunnarsdóttir arna@arborg.is Þórdís E. Sigurðardóttir thordise@arborg.is Helgi S. Haraldsson heh@eimskip.is Eggert V. Guðmundsson eggertvalur@simnet.is Sandra Dís Hafþórsdóttir sandradis@arborg.is Eyþór Arnalds arnalds@gmail.com Elfa Þórðardóttir elfa@arborg.is Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir johannayrj@hveragerdi.is Sveinn Steinarsson litlaland@simnet.is Stefán Jónsson stefan@olfus.is Eyþór H. Ólafsson eho@eimskip.is Ari Thorarensen arith@simnet.is Gunnar Þorgeirsson gunnar@gogg.is Aldís Hafsteinsdóttir aldis@hveragerdi.is Ingibjörg Garðarsdóttir inga@arborg.is (sign) | Til baka |