|
20.7.2010 09:13 52. fundur, 20.07.10 Héraðsnefnd Árnesinga Boðað var til fyrsta fundar kjörtímabilsins 2010-2014 hinn 20. júlí 2010. Aldursforseti héraðsnefndar, Drífa Kristjánsdóttir, stjórnaði fundi í upphafi, eins og kveðið er á um í samningi um héraðsnefnd. 1. Leitað var eftir tillögum um kjörnefnd, og hana skipuðu Ari Thorarensen, Gunnar Þorgeirsson og Guðmundur Þór Guðjónsson. Síðan var gert stutt fundarhlé meðan hún kannaði umboð fundarmanna. Úrskurðaði nefndin alla löglega, 17 aðalmenn og einn varamann. 2. Kosning oddvita og varaodddvita, kjör í héraðsráð og kjör skoðunarmanna. Fundarstjóri útskýrði vinnulag héraðsnefndar við nefndaskipanir, - sýslunni væri í raun skipt í 3 hólf; a) Árborg b) Ölfus og Hveragerði c) önnur sveitarfélög í Árnessýslu. Fram kom tillaga um að Gunnar Þorgeirsson yrði oddviti héraðsnefndar og var það samþykkt samhljóða. Gunnar tók síðan við stjórn fundarins. Þakkaði hann traust sér sýnt. Í héraðsráð voru kjörin ásamt oddvita: Aldís Hafsteinsdóttir varaoddviti og Ari Thorarensen. Til vara: Eyþór Arnalds, Gunnar Örn Marteinsson og Sveinn Steinarsson. Skoðunarmenn: Jón G. Valgeirsson, Ásta Stefánsdóttir og til vara Ingibjörg Harðardóttir og Margrét Sigurðardóttir. 3. Gert var stutt fundarhlé. Kjörnefnd gerði síðan tillögu um formenn starfsnefnda. Fjárhagsnefnd: Sandra Dís Hafþórsdóttir. Allsherjarnefnd: Ragnheiður Hergeirsdóttir. Mennta- og menningarmálanefnd: Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir. Héraðsráð mun gera tillögu að skipan annarra fulltrúa í starfsnefndir og voru ekki gerðar athugasemdir við þá tilhögun. 4. Kosning fulltrúa í stjórnir og nefndir á vegum Héraðsnefndar Árnesinga. Gert var stutt fundarhlé. Eftirfarandi tillögur um stjórnir og nefndir voru síðan bornar upp og samþykktar samhljóða: Stjórn Tónlistarskóla Árnesinga: Stjórn Héraðsskjalasafns Árnesinga: Stjórn Listasafns Árnesinga: Fulltrúi í stjórn Alviðru: Búfjáreftirlitsnefnd: Almannavarnir Árnessýslu: Fjárhaldsmaður Héraðsnefndar Árnesinga: Ritari: 5. Önnur mál. Drífa Kristjánsdóttir hóf máls á yfirfærslu málefna fatlaðra til sveitarfélaganna, hversu miklu varðaði að vel tækist til. Tóku fundarmenn almennt undir það og voru sammála um að tíminn væri naumur og nauðsynlegt að sem fyrst lægi ljóst fyrir hverjir ætluðu að standa saman að verkefninu hér á Suðurlandi og ekki síður hvaða form ætti að vera á slíku. Töldu fundarmenn nauðsynlegt að að oddviti héraðsnefndar hefði samband við formann SASS hið fyrsta, til að fyrstu skrefin yrðu samstíga, og kappkosta aðvanda undirbúningsvinnu flutningsins á allan hátt. Einnig var ákveðið að héraðsnefnd stæði fyrir kynningarfundi sveitarstjórnarmála fyrir nýja sveitarstjórnarmenn. Eyþór Arnalds minnti á nýlega samanburðarathugun á kostnaði við heilbrigðisþjónustu sem unnin var fyrir sveitarfélög í nágrenni Reykjavíkur. Þar kemur fram, að ýmis sjúkraþjónusta er ódýrari og hagkvæmari á vel búnum sjúkrahúsum á landsbyggðinni en í Reykjavík. Héraðsnefnd Árnesinga hvetur til að þessari athugun verði fylgt fast eftir á opinberum vettvangi, og telur hana verulegt sóknarfæri fyrir Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Allflestir fundarmenn tóku til máls um þessi málefni. Ritari fékk leyfi fundarins til að ganga frá fundargerð með hefðbundnum hætti. Fleira var ekki formlega rætt. Oddviti þakkaði fundarmönnum komuna og málefnalega umræðu, kvaðst vænta ánægjulegs samstarfs og sagði fundi slitið. Halla Guðmundsdóttir ritari Héraðsnefndar Árnesinga. Eftirtaldir héraðsnefndarmenn sátu fundinn allan eða að hluta: Gunnar Þorgeirsson Gunnar Örn Marteinsson Ragnar Magnússon Drífa Kristjánsdóttir Aðalsteinn Sveinsson Sveinn Steinarsson Stefán Jónsson Eyþór H. Ólafsson Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir Sandra Dís Hafþórsdóttir Ragnheiður Hergeirsdóttir Helgi S. Haraldsson Þórdís Eygló Sigurðardóttir Eggert V. Guðmundsson Elfa Dögg Þórðardóttir Eyþór Arnalds Ari Thorarensen Guðmundur Þór Guðjónsson | Til baka |