|
5.11.2010 15:13 53. fundur, 05.1.2010 Héraðsnefnd Árnesinga
53. fundur haldinn að Gömlu Borg, Grímsnes- og Grafningshreppi 5. nóvember 2010. 1. Oddviti héraðsnefndar, Gunnar Þorgeirsson, setti fund kl. 9.00 og bauð fundarmenn velkomna. Byrjaði hann á því að segja frá hinu fallega húsi, byggðu 1929, sem fundurinn var haldinn í. Það var í mikilli niðurníðslu og ekkert blasti við annað en niðurrif, þegar stofnuð voru samtök til að það gengi í endurnýjun lífdaga. Tókst það með mikilli vinnu og ósérhlífni þeirra sem verkið unnu. Viðgerðum var var lokið 1999 og er nú sannkölluð staðarprýði og eigendum sínum til sóma. 2. Fundargerðir héraðsráðs nr. 167 og 168 yfirfarnar með skýringum oddvita. Þær síðan staðfestar. 3. Fundargerðir stofnana: a) Tónlistarskóla Árnesinga nr. 153 b) Byggðasafns Árnesinga nr. 1 og 2. c) Búfjáreftirlitsnefndar frá 6. og 20. okt. d) Héraðsskjalasafns Árnesinga frá 27. sept. e) Listasafns Árnesinga frá 8. okt. 4. Fjárhagsáætlanir stofnana. Fjárhagsáætlunum undirstofnana HÁ vísað til umræðu í fjárhagsnefnd héraðsnefndar, sem hefur hist á fundum og farið yfir stöðu, breytingar og beiðnir sem fyrir liggja um fjárframlög. Til máls tóku, um lið 3 og 4, auk oddvita: Drífa Kristjánsdóttir, Guðmundur Þór Guðjónsson, Helgi Haraldsson, Aldís Hafsteinsdóttir, Gunnar Örn Marteinsson, Aðalsteinn Sveinsson, Sveinn Steinarsson, Sandra Dís Hafþórsdóttir og Eyþór Arnalds. 5. Erindi sem borist hafa: a) Frá Héraðsskjalasafni vegna aukningar á stöðuhlutfalli. Vísað til fjárhagsnefndar og mennta- og menningarmálanefndar. b) Erindisbréf Búfjáreftirlitsnefndar c) Stofnskrá Byggðasafns Árnesinga d) Stofnskrá Listasafns Árnesinga Liðum b, c og d vísað til allsherjarnefndar e) Frá Listasafni Árnesinga með beiðni um viðbótarframlag Vísað til fjárhagsnefndar. f) Frá Fjölbrautaskóla Suðurlands vegna byggingar verknámshúss. Vísað til fjárhagsnefndar og mennta- og menningarmálanefndar. Til máls tóku um erindi þessi, auk oddvita: Eyþór Arnalds, Aldís Hafsteinsdóttir, Ragnar Magnússon, Helgi S. Haraldsson, Elfa Dögg Þórðardóttir, Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, Ari Thorarensen, Eggert Guðmundsson; Sveinn Jónsson og Drífa Kristjánsdóttir. 6. Yfirlit forstöðumanna stofnana. Knútur Bruun stjórnarformaður Listasafns Árnesinga ávarpaði fundarmenn. Í stuttu máli telur hann LÁ hafa að flestu leyti náð markmiðum sínum í sýningahaldi. Nú sé tækifæri fyrir stórsókn á sviði stafrænu tækninnar, þar sem færa megi safnið út til fólksins ef svo megi segja. Hefur safnið mikinn huga á að ráða fræðslufulltrúa til viðbótar stöðu safnstjóra, sem hefur ærin verkefni. Lagði hann fram ársskýrslu og ýmis kynningargögn og sýndi mynd frá safninu. Mæltist hún vel fyrir. Til máls tóku auk oddvita, Aldís Hafsteinsdóttir, Eyþór Arnalds og safnstjóri, Inga Jónsdóttir. Frá Tónlistarskóla Árnesinga voru mætt Helga Sighvatsdóttir og Jóhann Stefánsson.Fóru þau yfir starfsemina á síðasta ári, sem er ótrúlega mikil. Undanfarin tvö ár hafa margir verið í hálfu námi vegna fjárhagslegra annmarka, en markmið skólastjórnenda er að skólinn sé í fremstu röð á sínu sviði og æskilegt að auka fullt nám eins og kostur er. Lögð fram vönduð og fjölbreytt skýrsla Tónlistarskóla Árnesinga. Til máls tóku, auk oddvita, Aldís Hafsteinsdóttir, Eyþór Arnalds, Ragnar Magnússon, Sandra Dís Hafþórsdóttir, Sveinn Steinarsson og Arna Ír Gunnarsdóttir. Þorsteinn Tryggvi Másson forstöðumaður Héraðsskjalasafns Árnesinga greindi frá starfsemi safnsins síðastliðið ár og lagði fram skýrslu þar um. Ber sérstaklega að geta fjölda ljósmyndasafna sem HÁ hafa borist og fleiri eru væntanleg á næstunni. Einnig er hafin rafræn skráning gagna sveitarfélaga, sem eru að koma sér upp svonefndum „málalyklum“ skv. lögum. Verkefnum fer stöðugt fjölgandi og kalla á fleiri starfsmenn. Til máls tóku auk oddvita, Arna Ír Gunnarsdóttir, Gunnar Örn Marteinsson og Elva Dögg Þórðardóttir. Lýður Pálsson forstöðumaður Byggðasafns Árnesinga minntist þess til gamans í upphafi máls síns, að hann hefur sótt héraðsnefndarfundi síðan 1993. Þá hafði engin sameining sveitarfélaga á svæðinu átt sér stað. Fór hann í stuttu máli yfir starfsemina, sem hefur verið gróskumikil á árinu. Þátttaka Byggðasafnsins í ýmsum sýningum og hátíðahöldum fer sívaxandi, og er það mjög skemmtilegt og lifandi verkefni eins og að líkum lætur. Drap hann á mismunandi mats-upphæðir vegna skemmda í jarðskjálftanum. Arfur Helga Ívarssonar kemur í góðar þarfir og er þar horft til bættrar sýningaraðstöðu. Til máls tóku auk oddvita: Elfa Dögg Þórðardóttir og Helgi Haraldsson. Gunnar Þorgeirsson oddviti og kona hans buðu upp á ljúffengan hádegisverð í gróðurhúsunum að Ártanga. Er hér þakkað fyrir rausnarlegt boð. Síðan var fundi fram haldið: 7. Almannavarnir Árnessýslu. Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður flutti erindi, lagði fram fundargerð til kynningar og skýrði áætlanir, stjórn og tilhögun þessa málaflokks. Nefndastörf hófust. Eftirfarandi nefndaálit voru samþykkt með áorðnum breytingum, að undangengnum umræðum, sem allir fundarmenn tóku þátt í: Mennta- og menningarmálanefnd: Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir formaður Drífa Kristjánsdóttir Ragnar Magnússon Elfa Dögg Þórðardóttir Eggert Valur Guðmundsson „Tillaga um fulltrúa í fagráð Félags tónlistarskólakennara Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir Frá Héraðsskjalasafni Ósk um hækkun á stöðuhlutfalli skjalavarðar á Héraðsskjalasafni Árnesinga. Nefndin lýsir stuðningi við málið þar sem safnið er undirmannað. Tillaga Mennta- og menningarnefndar er að samþykkja beiðni um hækkun á starfshlutfalli úr hálfu starfi skjalavarðar Héraðsskjalasafnsins í heilt. Verknámshús Fjölbrautarskóla Suðurlands: Héraðsnefnd samþykkir að fresta greiðslum í byggingarsjóð verknámshúss Fjölbrautarskóla Suðurlands frá og með næstu áramótum hafi fjármálaráðherra ekki undirritað samning um aðkomu ríkisins að fjármögnun byggingarinnar. Menntamálaráðherra hefur þegar staðfest þörf á mikilvægi verknáms á Suðurlandi . Því vantar aðeins aðkomu fjármálaráðherra að málinu.” Samþykkt samhljóða. Allsherjarnefnd: Arna Ír Gunnasdóttir formaður Gunnar Örn Marteinsson Stefán Jónsson Helgi S. Haraldsson Þórdís Eygló Sigurðardóttir 1. Allsherjarnefnd leggur til að endurskoðað erindisbréf fyrir búfjáreftirlitsnefnd verði samþykkt eins og það liggur fyrir. 2. Allsherjarnefnd leggur til að endurskoðuð Stofnskrá fyrir Byggðasafn Árnesinga verði samþykkt eins og hún liggur fyrir. 3. Allsherjarnefnd leggur til að endurskoðuð Stofnskrá fyrir Listasafn Árnesinga verði samþykkt eins og hún liggur fyrir. Samþykkt samhljóða. Fjárhagsnefnd: Sandra Dís Hafþórsdóttir formaður Aðalsteinn Sveinsson Guðmundur Þór Guðjónsson Sveinn Steinarsson Eyþór Arnalds „Nefndin hefur haldið þrjá fundi til undirbúnings fyrir fund Héraðsnefndar og kallað til sín alla forstöðumenn stofnana Mætt á alla fundi: Sandra Dís, Aðalsteinn og Guðmundur. Mætti á einn fund: Sveinn Steinarsson og Eyþór Arnalds símleiðis. Fjárhaldsmaður Héraðsnefndar, Ingibjörg Garðarsdóttir starfar einnig með nefndinni. Nefndin tekur að fullu tillit til þeirra aðstæðna sem ríkja í efnahagsmálum þjóðarinnar í tillögum sínum. Nefndin telur að stofnanir geti áfram starfað að metnaði og framsækni þó ekki sé orðið að fullu við umbeðnum hækkunum á framlögum. Fjárhagsnefnd hefur mikla trú á því góða fólki sem starfar í öllum stofnunum Héraðsnefndar og treystir því til að leysa verkefni komandi árs í samræmi við þessar áætlanir. 1. Byggðasafn Árnesinga Tillaga safnstjóra og stjórnar gerir ráð fyrir fjárveitingu að upphæð 18.900.000 kr. Fjárhagsnefnd leggur til breytingar á áætlun safnsins. Lagt er til að færðar verði til tekna 500.000 kr. úr dánarbúi Helga Ívarssonar fyrir umsýslu og vinnu forstöðumanns við skráningu og úrvinnslu muna úr dánarbúinu, þá er einnig lagt til að annar rekstrarkostnaður verði lækkaður um 200.000 kr. Fjárhagsnefnd leggur til að fjárveiting til Byggðasafns Árnesinga verði 18.200.000 kr. og er það hækkun um 300.000 kr. frá fyrra ári. 2. Héraðsskjalasafn Árnesinga Tillaga safnstjóra og stjórnar gerir ráð fyrir fjárveitingu að upphæð 14.100.000 kr. Fjárhagsnefnd leggur til breytingar á áætlun safnsins. Lagt er til að færðar verði til tekna 500.000 kr. úr dánarbúi Helga Ívarssonar fyrir umsýslu og vinnu forstöðumanns við skráningu og úrvinnslu muna úr dánarbúinu. Í árslok 2010 er gert ráð fyrir því að safnið eigi 300.000 kr. í sjóði og leggur nefndin til að safnið nýti það fé í rekstur sinn. Sveitarfélagið Árborg hefur samþykkt að lækka húsaleigu um 150.000 kr. og leggur nefndin til að annar rekstrarkostnaður verði lækkaður um 350.000 kr. Fjárhagsnefnd mælir með aukningu á starfshlutfalli skjalavarðar úr 50% í 100% þar sem það felur í sér sparnað fyrir aðildarsveitarfélögin til lengri tíma litið. Vakin er athygli á því að fyrrgreind aukning á starfshlutfalli er innifalin í fjárhagsáætlun safnsins. Fjárhagsnefnd leggur til að fjárveiting til Héraðsskjalasafns Árnesinga verði 12.800.000 kr. og er það hækkun um 800.000 kr. frá fyrra ári. 3. Listasafn Árnesinga Tillaga safnstjóra og stjórnar gerir ráð fyrir fjárveitingu að upphæð 19.000.000 kr. Fjárhagsnefnd leggur til breytingar á áætlun safnsins. Lagt er til að annar rekstrarkostnaður verði lækkaður um 900.000 kr. Fjárhagsnefnd mælir ekki með viðbótar fjárveitingu til safnsins að upphæð 6.300.000 kr. vegna ráðningu fræðslufulltrúa og kostnaði við að koma safninu í stafrænt umhverfi. Fjárhagsnefnd beinir þeim tilmælum til safnstjóra og stjórnar safnsins að gengið verði í það árið 2011 að ljúka viðgerðum vegna jarðskjálftaskemmda þar sem safnið hefur fengið greiddar bætur vegna þessa upp á 2.900.000 kr. Einnig óskar nefndin eftir því að gengið verði í það að fá metið það tjón sem varð á þaki safnsins í sama jarðskjálfta. Fjárhagsnefnd samþykkir að fela fjárhaldsmanni að leita bestu kjara í bókhaldsþjónustu og öryggisgæslu fyrir allar stofnanirnar. Fjárhagsnefnd leggur til að fjárveiting til Listasafns Árnesinga verði 18.100.000 kr. og er það hækkun um 900.000 kr. frá fyrra ári. 4. Tónlistarskóli Árnesinga Tillaga skólastjóra og stjórnar gerir ráð fyrir fjárveitingu að upphæð 144.266.836 kr. Fjárhagsnefnd leggur til að ófyrirséður kostnaður felldur út úr áætlun skólan 4.201.947 kr. Undanfarin 2 ár hefur skólinn nýtt allt sitt eigið fé og ljóst að því er ekki til að dreifa lengur. Sveitarfélögin greiða einungis kennsluhluta skólans og má rekja beiðni um hækkun til hækkunar á tryggingargjaldi. Fjárhagsnefnd leggur til að fjárveiting til Tónlistarskóla Árnessýslu verði 140.064.889 kr. og er það hækkun um 2.359.601 kr. frá fyrra ári. 5. Almannavarnir Árnessýslu Tillaga stjórnar gerir ráð fyrir fjárveitingu að upphæð 1.985.000 kr. Fjárhagsnefnd leggur til að fjárveiting til Almannavarna verði 1.985.000 kr. en það er óbreytt framlag frá fyrra ári. 6. Alviðrufélagið Fjárhagsnefnd leggur til að framlag til Alviðru verði óbreytt frá fyrra ári 500.000 kr. 7. Fastir styrkir Fjárhagsnefnd leggur til að framlög verði óbreytt frá fyrra ári 1.574.000 kr. 8. Stjórnunarkostnaður Fjárhagsnefnd leggur til að stjórnunarkostn. verði óbreyttur á milli ára 2.500.000 kr.“ - - - - - - - - Eftirfarandi tillögur til breytinga komu fram frá fulltrúum Árborgar: a) Breyting á lið 1. Byggðasafn Árnesinga:”Héraðsnefnd samþykkir óbreytt framlög til Byggðasafns Árnesinga”. (Greinargerð: Svigrúm til hækkana er afar lítið, enda eru sveitarfélögin í viðkvæmum niðurskurði og er því erfitt að réttlæta hækkanir til BÁ). Þessi tillaga var felld með 10 atkvæðum gegn 8. b) Breyting á lið 3. Listasafn Árnesinga: ”Héraðsnefnd samþykkir óbreytt framlög til Listasafns Árnesinga. (Greinargerð: Svigrúm til hækkana er afar lítil, enda eru sveitarfélögin í viðkvæmum niðurskurði. Listasafnið hefur eitthvert lausafjárssvigrúm samkvæmt ársreikningi en mikilvægt er engu að síður að rekstur sé í jafnvægi.) Tillaga Árborgar um framlag til LÁ var samþykkt með 10 atkv. gegn 8. Að öðru leyti var nefndarálit fjárhagsnefndar samþykkt. Hér á eftir fer fjárhagsáætlun Héraðsnefndar Árnesinga birt eins og hún liggur þá fyrir: ![]() Önnur mál: Í almennum umræðum sem allir fundarmenn tóku þátt í, kom fram, að rétt þykir að afla betri upplýsinga um ýmis málefni sem liggja til grundvallar styrkjum sem greiddir eru af héraðsnefnd. Einnig kom fram sú hugmynd, að hafa mætti almennan sjóð, sem hægt væri að sækja um til margvíslegra málefna. Héraðsráði var falið að skoða málefni Alviðru, og leggja fram upplýsingar fyrir vorfund. Gerð var sú athugasemd við reikninga og áætlanir stofnana, að ekki væri auðvelt að bera þær saman. Einnig afar mikinn mismun á bókhaldskostnaði. Fjárhaldsmaður mun útbúa samræmt skjal sem allar stofnanir munu nota við fjárhagsáætlun framvegis og mun það auðvelda allan samanburð. Oddviti gerði að tillögu sinni að héraðsráð fari yfir launamál stjórna á vegum Héraðsnefndar Árnesinga og finni samræmi þar í. Héraðsnefnd hefur í hyggju að bjóða héraðsnefndum Rangæinga og V-Skaftfellinga í heimsókn með vorinu og héraðsráði falið að hyggja að því. Oddviti þakkaði fundarmönnum góðan og gagnlegan fund. Fundi slitið kl. 16.00. Skógræktarfélag Árnesinga bauð héraðsnefndarmönnum í ánægjulega og fróðlega heimsókn að Snæfoksstöðum. Grímsnes- og Grafningshreppur bauð síðan til kvöldverðar, og var það endirinn á rausnarlegum viðurgjörningi á 53. fundi Héraðsnefndar Árnesinga að Gömlu-Borg. Halla Guðmundsdóttir ritari Héraðsnefndar Árnesinga. Eftirtaldir héraðsnefndarmenn sátu fundinn, allan eða að hluta: Drífa Kristjánsdóttir torfast@simnet.is Ragnar Magnússon ragnar@fludir.is Aðalsteinn Sveinsson adalsteinn@floahreppur.is Gunnar Örn Marteinsson oddviti@skeidgnup.is Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir johannayrj@hveragerdi.is Guðmundur Þór Guðjónsson gudmundur@jotunn.is Helgi S. Haraldsson helgihar@simnet.is Eggert V. Guðmundsson gloab@simnet.is Arna Ír Gunnarsdóttir arna@smfs.is Þórdís Eygló Sigurðardóttir thordise@arborg.is Elfa Þórðardóttir elfa@arborg.is Sandra Dís Hafþórsdóttir sandradis@arborg.is Eyþór Arnalds arnalds@gmail.com Stefán Jónsson stefan@olfus.is Sveinn Steinarsson sveinn@olfus.is Gunnar Þorgeirsson gunnar@gogg.is Ari B. Thorarensen arith@simnet.is Aldís Hafsteinsdóttir aldis@hveragerdi.is og Ingibjörg Garðarsdóttir fjárhaldsmaður. inga@arborg.is | Til baka |
