8.4.2010 11:06
51. fundur, 08.04.2010

Héraðsnefnd Árnesinga

51. fundur

haldinn í Alviðru og á Flúðum

8.-9. apríl 2010.

Til þessa fundar var boðað í Alviðru kl. 11.30. Þar tóku á móti héraðsnefndarmönnum fulltrúar Landverndar, og hafði Björgólfur Thorsteinsson framkvæmdastjóri samtakanna, orð fyrir þeim.  Jarðirnar Alviðra í Ölfusi og Öndverðarnes II í Grímsnesi eru sameiginleg eign Árnessýslu og Landverndar og liggja sín hvoru megin við Sogið. Fóru nefndarmenn um jörðina í blíðskaparveðri og fræddust um Alviðru. 
Magnús Jóhannesson bóndi í Alviðru gaf Árnessýslu og Landvernd jarðirnar árið 1973, og fylgdu gjöfinni þó ýmsar kvaðir.

Samkvæmt upplýsingum frá Búnaðarsambandi Suðurlands er jörðin Alviðra 651 hektari að stærð. Nokkur hluti jarðarinnar er ógróið land á Ingólfsfjalli. Samkvæmt sömu heimildum má ætla að Öndverðarnes II sé um 400 ha. Jarðirnar eru á náttúruminjaskrá. Náttúrufar er auðugt, gróðurfar og fuglalíf fjölbreytt. Þar má njóta útivistar í friðsælu og fögru umhverfi og er öllum frjálst að ganga um landið og njóta náttúrunnar. Merktar gönguleiðir eru um land jarðanna og er merkt gönguleið á Ingólfsfjall. Af Ingólfsfjalli er mikið útsýni.
Kort eru á hlaðinu í Alviðru og í Öndverðarnesi. Hægt er að taka með sér handhægt kort í gönguferðir. Þrastaskógur er í göngufæri. Upplýsingaskilti um náttúrufar og menningarminjar eru við gönguleiðir í Öndverðarnesi
.

Um langa hríð hefur Landvernd rekið fræðslu- og umhverfis-setur í Alviðru – hið eina á landinu. Þar hafa skólabekkir komið með kennara sínum og notið náttúru svæðisins. Á staðnum er kennslustofa, matsalur og svefnloft. Skólar hafa greitt þóknun fyrir þessa aðstöðu. Er skemmst frá að segja að mjög hefur hallað undan fæti í rekstri Alviðru á síðustu tveimur árum; þar sem skólar spara við sig allt sem hægt er.

 

Hver verður framtíð Alviðru?

Björgólfur kvað stjórn Alviðru standa frammi fyrir alvarlegum vanda, óbreyttur rekstrargrundvöllur væri brostinn. Mikils viðhalds væri þörf. Stofnunin ætti 6 milljónir í sjóði, sem myndi hrökkva skammt. Nú væri raunar komið að pólitískri ákvörðun um framtíð stofnunarinnar. 

Boðið var upp á hressingu og málin rædd þar frá ýmsum hliðum, og einboðið að taka málið til umræðu á fundinum á Flúðum síðdegis.  Þakkaði oddviti góðar og fræðandi upplýsingar og ánægjulega stund í Alviðru.

 

2.     Fundarmenn héldu síðan til hátíðar á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, en þá var formlega tekin í notkun ný heilsugæslustöð á Selfossi. Var það ánægjulegur og langþráður atburður.

 

Fundi var síðan fram haldið á Hótel Flúðum kl. 16.30. Oddviti gat um eina breytingu á dagskrá og fékk samþykki fundar til að leggja fram erindi frá Fsu. vegna byggingasjóðs - sem ekki var í útsendum gögnum.

 

3.     Fundargerðir héraðsráðs nr. 165-166 lagðar fram og staðfestar án athugasemda.

 

4.     Aðrar fundargerðir: Héraðsskjalasafn Árnesinga, - 25.11.09 og 17.02.10.

                                                Tónlistarskóli Árnesinga  - 15.02.10

5 fundargerðir Framkv.ráðs Almannavarna 28.10 til 11.01.

Listasafn Árnesinga frá 30.03.10

Byggðasafn Árnesinga frá 24.03.10. Um þá fundargerð voru nokkrar umræður, en í þeim kom fram, að Margeir Ingólfsson er fulltrúi héraðsnefndar þegar rædd eru málefni safnsins er lúta að jarðskjálftaskemmdum og/eða bótum þeirra vegna.

Til máls tóku undir þessum lið, auk oddvita: Margrét Katrín Erlingsdóttir, Margeir Ingólfsson, Páll Stefánsson, Þorvaldur Guðmundsson, Eyþór Arnalds og Gylfi Þorkelsson.

Fundargerðir þessar síðan staðfestar.

 

5.     Ársreikningar 2009. Héraðsnefnd Árnesinga, Héraðsskjalasafn Árnesinga, Byggðasafn Árnesinga, Listasafn Árnesinga, Tónlistarskóli Árnesinga, Almannavarnanefnd Árnessýslu.  Allnokkrar umræður urðu um þessa reikninga, þar sem þeir virtust ekki allir færðir á sömu forsendum, s.s. hvað eignaskráningu áhrærði, og fannst fundarmönnum endurskoðun þarna vera áfátt. Öllum reikningum vísað til umræðu í fjárhagsnefnd, sem skyldi sérstaklega athuga þetta. Til máls tóku auk oddvita: Margrét Katrín Erlingsdóttir, Eyþór Arnalds, Gylfi Þorkelsson, Aldís Hafsteinsdóttir, Ingvar G. Ingvarsson, Þorvaldur Guðmundsson og Ingibjörg Garðarsdóttir.

 

6.     Kynning á áhættugreiningu Almannavarna Árnessýslu. Til fundarins komu Ólafur Helgi Kjartansson, Oddur Árnason og Kristján Einarsson og fylgdu úr hlaði mjög ýtarlegri skýrslu sem nálgast má í heild sinni hjá Almannavörnum.  Svöruðu þeir fjölmörgum spurningum. Var mál manna að vel hefði tekist með samantekt þessa. Til máls tóku Herdís Þórðardóttir, Aldís Hafsteinsdóttir, Þorvaldur Guðmundsson, Ari Thorarensen, Gylfi Þorkelsson, Eyþór Arnalds og oddviti.

 

7.     Fulltrúar frá Listasafni Árnesinga komu á fundinn, Knútur Bruun, Ísólfur Gylfi Pálmason og Inga Jónsdóttir, og hafði Knútur orð fyrir þeim. Kvað hann metnaðarfullri stefnu hafa verið framfylgt; stjórn ásamt safnstjóra tekist að fylgja markmiðum sínum undanfarin ár. Nú væri komið að vissum tímamótum, ef vel ætti að vera þyrfti að sinna miklu betur fræðslu- og útbreiðslustarfi. Skv. áætlun stjórnar og safnstjóra myndi það kosta 5,5 millj. kr. til viðbótar frá héraðsnefnd. Þau svöruðu ýmsum spurningum, viku síðan af fundi. Allnokkrar umræður urðu um þetta mál. Veltu fundarmenn fyrir sér tekjumöguleikum, svo og hugsanlegum viðbótarframlögum sveitarfélaganna heima fyrir til að liðka fyrir þessu máli – aðkomu ríkisins – safnalögum osfrv. Til máls tóku Gylfi Þorkelsson, Aldís Hafsteinsdóttir, Herdís Þórðardóttir, Ingvar G. Ingvarsson, Elfa Dögg Þórðardóttir, Guðbjörg Jónsdóttir, Margrét Katrín Erlingsdóttir, og oddviti. Vísað til mennta- og menningarmálanefndar til umfjöllunar.

 

Fundi var nú frestað til morguns, en Hrunamannahreppur bauð upp á hressingu fyrir prýðilegan kvöldverð á Hótel Flúðum, í boði héraðsnefndar. Var glatt á hjalla og ekki laust við að saknaðartóns gætti hjá þeim sem nú hyggjast hverfa af vettvangi sveitarstjórnarmála.

 

8.     Fundi fram haldið að morgni 9. apríl.  Fulltrúar Tónlistarskóla Árnesinga sögðu frá starfseminni. Þakkaði skólastjóri HÁ samstarfið undanfarið ár. Gagnkvæmur skilningur ríkir á fjárhagsvanda stofnana, og reynt er að teygja sig til hins ýtrasta til að gera sem best úr málunum.  Skólinn stóðst áætlun, og mun halda skólagjöldum óbreyttum þriðja skólaárið í röð. Það sem af er  vetri hafa verið haldnir um 50 tónfundir og tónleikar, auk tónlistarflutnings við ýmis hátíðleg tækifæri. Til máls tóku, auk oddvita: Aldís Hafsteinsdóttir, Margrét Katrín Erlingsdóttir, Guðbjörg Jónsdóttir og Ari Thorarensen og voru menn sammála um hversu vel hefði til tekist.

 

9.     Lýður Pálsson sagði frá Byggðasafni Árnesinga og lagði fram fyrirmyndarskýrslu um starfsemina, sem of langt mál yrði að rekja hér, en vísað til vefsíðunnar husid.com. Fyrest og fremst snerust umræður um misvísandi jarðskjálftamat á húsum BÁ og ýmis vandræði sem ekki sér fyrir endann á tengd jarðskjálftunum. Eins og áður kom fram er Margeir fulltrúi héraðsnefndar í öllum málum tengdum honum.  Eins spurt um ýmis bókhaldsatriði. Fékk BÁ hrós fyrir skýrsluna. Til máls tóku auk oddvita: Margeir Ingólfsson, Aldís Hafsteinsdóttir, Margrét Katrín Erlingsdóttir og Guðbjörg Jónsdóttir.

 

10.  Héraðsskjalasafn Árnesinga.  Þorsteinn Tryggvi Másson safnstjóri sagði frá starfseminni, sem er mjög öflug.  Handbók um skjalavörslu er í vinnslu.  Sýning á gömlum ljósmyndum gengur vel, og búið að staðfesta hverjir eru á fjölda mynda sem áður reiknuðust “óþekktar”. Sífellt er verið að afhenda safninu margvísleg gögn, og vel gengur að skrá, en samt hækkar staflinn stöðugt. Hefur Þorsteinn mikinn hug á að ráða starfsmann yfir sumarið ef kostur væri.Greinilegt er, að héraðsskjalasafnið er í fremstu röð og mikill áhugi og kunnátta er fyrir hendi sem skilar því með sóma inn í nýja öld. Til máls tóku, auk oddvita: Ingvar G. Ingvarsson, Margeir Ingólfsson, Margrét Katrín Erlingsdóttir, Gunnar Örn Marteinsson, Aldís Hafsteinsdóttir og Páll Stefánsson. Voru menn sammála um að hinn nýi forstöðumaður væri réttur maður á réttum stað.

 

11.  Erindum sem fyrir fundinum lágu var vísað til umfjöllunar í viðeigandi nefndum;

a)     Frá Fsu. – samningsdrög vegna verknámshúss.  B)  Skipan í samráðsnefnd vegna fjallskila í Landnámi Ingólfs.  c)  Erindi frá safnstjóra Byggðasafns Árnesinga.

 

Að loknum nefndastörfum var fundi fram haldið.

Eftirfarandi tillögur starfsnefnda voru samþykktar samhljóða að undangengnum umræðum og áorðnum breytingum:

 

 

Fjárhagsnefnd:

Fjárhagsnefnd skipa;

Margrét K. Erlingsdóttir formaður, Aðalsteinn Sveinsson,  Ólafur Áki Ragnarsson og  Eyþór Arnalds.

 

Mætt á báða fundi: Margrét K. Erlingsdóttir og Aðalsteinn Sveinsson.  Ólafur Áki Ragnarsson boðaði forföll.

 

Á héraðsnefndarfundi unnu í nefndinni Margrét K. Erlingsdóttir, Birna Borg Sigurgeirsdóttir og Guðbjörg Jónsdóttir.

 

Einnig starfaði með nefndinni fjárhaldsmaður Ingibjörg Garðarsdóttir.

 

   Nefndin hefur haldið tvo fundi til undirbúnings fyrir fund Héraðsnefndar og yfirfarið ársreikninga stofnana.  Nefndin lagði til breytingar á ársreikningum Héraðsnefndar, Byggðasafnsins og Almannavarnanefndar.   Gerðar voru þær leiðréttingar sem nefndin lagði til nema hvað varðaði einfærslu innréttinga í Eggjaskúr Byggðasafnsins.

 

Ársreikningur Héraðsnefndar Árnesinga, Byggðasafns Árnesinga, Héraðsskjalasafns Árnesinga, Tónlistaskóla Árnesinga,  Listasafns Árnesinga og Alamannavarnanefndar Árnessýslu.

 

Ársreikningur Héraðsnefndar Árnesinga lagður fram.  Gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun 2009 að niðurstaða ársins yrði neikvæð um 1.100.000.- sem tekið yrði af eigin fé nefndarinnar

Niðurstaða ársins er neikvæð kr. 1.402.207-.  Mismunurinn er kr. (302.207-) og fellst hann meðal  annars í því að bifreiðakostnaður  vegna ársins 2008 var gjaldfærður á árinu, stjórnunarkostnaður hækkar einnig lítillega á milla ára, ýmsir styrkir eru 400.000- kr. hærri en áætlun,  þar  sem styrkur til Svæðisstjórnar Björgunarsveita vegna 2008 er gjaldfærður á árinu,  vaxtatekjur árins voru kr. 194.239- . 

Fjárhagsnefnd leggur til að reikningurinn verði samþykktur.

 

Ársreikningur Byggðasafns Árnesinga lagður fram.    Gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun 2009 að niðurstaða ársins væri jákvæð um 180.000-.  Niðurstaða ársins er neikvæð um kr. 2.069.551-.  Safnið greiddi með starfsemi fornleifaskráningar kr. 550.000- og jarðskjálftaframkvæmdir ársins eru um kr. 1.295.224- hærri en tekjufærsla ársins, en bent er á að á árinu 2008 voru jarðskjálftabætur að fullu tekjufærðar en ekki færðar í efnahag.  Einnig var smíðuð innrétting í eggjaskúr sem safnið greiddi með kr. 413.620-.  

Fjárhagsnefnd leggur til að reikningurinn verði samþykktur.

 

Ársreikningur Héraðskjalasafns Árnesinga lagður fram.  Gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun 2009 að niðurstaða ársins yrði neikvæð um  kr. 2.610.000-  sem tekið yrði af eigin fé safnsins.  Niðurstaða ársins er neikvæð um kr. 1.384.173- og er niðurstaðan 1.225.826- kr. lægri en gert var ráð fyrir.   Styrkur frá Þjóðskjalasafni er 600.000- kr. hærri en gert var ráð fyrir og einnig eru eigin tekjur safnsins hærri um kr. 431.290-.

Fjárhagsnefnd leggur til að reikningurinn verði samþykktur.

 

Ársreikningur Listasafns Árnesinga lagður fram.  Gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun 2009 að rekstur safnsins yrði á pari.  Niðurstaða ársins er jákvæð um kr. 448.926- .  Vakin er athygli á því að aðrar tekjur safnsin eru lægri um 2.2 milljónir en gert var ráð fyrir, ljóst er að bruðist hefur verið við því í tíma eins og niðurstaðan sýnir.  Í ársreikningi  kemur fram að styrkur Hveragerðisbæjar er lægri um kr. 482.821- en áætlun gerði ráð fyrir.  Þetta á sínar skýringar,  verkefni sem unnin eru fyrir safnið  samkvæmt þjónustusamningi voru skuldfærð af styrknum en ekki tekjufærð og gjaldfærð í reikningum safnsins, einnig var  reikningur vegna þjónustu sem safnið vann samkvæmt samningi ekki sendur fyrr en á árinu 2010.

Fjárhagsnefnd leggur til að reikningurinn verði samþykktur.

 

Ársreikningur Tónlistaskóla Árnesinga lagður fram.  Gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun 2009 að rekstur skólans yrði á pari.  Niðurstaða ársins er jákvæð um kr. 5.820.219-.

Fjárhagsnefnd leggur til að reikningurinn verði samþykktur.

 

Ársreikningur Almannavarnanefndar Árnessýslu lagður fram.   Fjárhagsnefnd bendir á að í reikningnum er blandað saman reikningi Almannavarnarnefndar Árborgar og nágrennis og Almannavarnanefndar Árnessýslu. 

Fjárhagsnefndin leggur til að ársreikningnum verði vísað frá til leiðréttingar.

2.  Byggðasafn Árnesinga.

Beiðni safnstjóra um hækkun á framlagi um kr. 500.000 vegna lækkunar á styrk frá Safnasjóði.

Fjárhagsnefnd leggur til að aukafjárveitingu til Byggðasafns Árnesinga verði hafnað.  Það er mat nefndarinnar að þessari lækkun sé hægt að mæta með eigin fé safnsins sem er tilkomið vegna jarðskjálftabóta.  Nefndin telur að safnið geti nýtt þær bætur sem greiddar hafa verið vegna vinnu starfsmanna inn í rekstur safnsins.

 

3.  Önnur mál.

a)  Fjárhagsnefnd bendir á mikilvægi þess að sveitarfélög greiði framlög sín á réttum tíma, en borið hefur á því sl. mánuði að ekki hefur verið hægt að greiða framlög til stofnana vegna þess að sveitarfélögin hafa ekki staðið í skilum.  Þetta hefur þær afleiðingar að stofnanir geta ekki greitt laun og annan kostnað á réttum tíma.  Einnig er bent á, að skv. 14. Gr. samnings um héraðsnefnd að dráttarvaxtareikna framlög sveitarfélaga ef greitt er eftir 10. hvers mánaðar. Fjárhagsnefnd mælist til að fjárhaldsmaður fari eftir samþykktum héraðsnefndar og reikni dráttarvexti á vanefndir framlaga.

b)  Fjárhagsnefnd beinir því til héraðsnefndar að fjárfestingar innan stofnana og nefndarinnar séu eignfærðar.  Mikilvægt er, að til að sveitarstjórnir geri sér grein fyrir hverjar eignir eru innan héraðsnefndar, og að þær séu skráðar.  Á þetta jafnt við um þær eignir sem til eru nú þegar, og ekki eru til á skrá og fjárfestingar í nýjum eignum.

 

                                                                                                Samþykkt samhljóða.

 

Mennta- og menningarmálanefnd:

 

                                                                                                                                                Eyþór H. Ólafsson formaður

                                                                                                                                                Ari Thorarensen, Gylfi Þorkelsson,

                                                                                                Grímur Arnarson, Ingvar Ingvarsson.

 

Listasafnið – fræðslufulltrúi.

Nefndin telur ljóst að með ráðningu fræðslufulltrúa opnist tækifæri til að nýta betur þá auðlind sem í safninu felst, t.d. fyrir skóla í héraðinu. Hins vegar telur nefndin nauðsynlegt að fyrir héraðsnefnd verði lagðar fram nánari hugmyndirfrá stjórn og forstöðumanni um starfið í formi starfslýsingar og hugsanlegra tekjumöguleika, og haustfundur héraðsnefndar taki málið fyrir við gerð fjárhagsáætlunar næsta árs.

 

                                                                                                Samþykkt samhljóða.

 

Allsherjarnefnd:

                                                                                                Þorvaldur Guðmundsson formaður,

                                                                                                                                                Ragnar Magnússon, Páll Stefánsson,

                                                                                                Gunnar Örn Marteinsson, Herdís Þórðardóttir,

                                                                                                                                                Elfa Dögg Þórðardóttir.

 

Alviðra: 

Héraðsnefnd þakkar fyrir heimboð að Alviðru og kynningu á starfsemi undanfarinna ára. Starfsemin stendur á ákveðnum tímamótum og þörf er á að móta stefnu um framtíðarsýn staðarins.

Héraðsnefnd samþykkir að Aðalsteinn Sveinsson, Ingvar G. Ingvarsson og Páll Stefánsson skipi starfshóp sem vinni með Landvernd um framtíð Alviðru.

Erindi Fjölbrautarskóla Suðurlands:

Lagt er til að framlög Héraðsnefndar Árnesinga til byggingasjóðs FSU verði með sama hætti og verið hefur.

Samningur um stækkun verknámsaðstöðu FSU:

Héraðsnefnd Árnesinga felur varaoddvita héraðsráðs fyrir hönd nefndarinnar að undirrita samning um stækkun verknámsaðstöðu FSU.  Jafnframt skorar héraðsnefnd á ríkisvaldið að tryggja fjármögnun byggingarinnar. Benda má á að sveitarfélög hafa nú þegar lagt um 100 milljónir króna í byggingarsjóð FSU.

 

                                                                                                Samþykkt samhljóða.

12.  Önnur mál:

Skv. lögum nr. 401/1996 „...skulu héraðsnefndir kjósa 5 manna samráðsnefnd til fjögurra ára í senn, sem skal fylgjast með framkvæmd fjallskilamála í Landnámi Ingólfs Arnarsonar, og gera tillögur til héraðsnefnda og sveitarstjórna um úrbætur eftir því sem þörf krefur hverju sinni.  Skulu þrír nefndarmanna vera úr Árnessýslu vestan vatna og tveir úr Kjalarnesþingi.  Aldursforseti nefndarinnar boðar til fyrsta fundar hennar, og skal þá kosinn formaður sem annast síðan stjórn og boðun funda.“

Héraðsnefnd Árnesinga tilnefnir:  Björn Snorrason Björk, Snorra Þórarinsson Vogsósum og Jóhannes Sveinbjörnsson Heiðarbæ. Er héraðsráði falið að koma þessu á framfæri við sveitarfélög sem málið varðar.

 

Ekki voru önnur formleg erindi reifuð. Margir héraðsnefndarmenn hverfa nú til annarra starfa og þökkuðu ánægjuleg kynni og samveru. Ritari þakkaði einstakt og ómetanlegt traust sér sýnt.

 

Að lokum kvaddi Ragnheiður Hergeirsdóttir oddviti Héraðsnefndar Árnesinga alla héraðsnefndarfulltrúa með þakklæti og góðum óskum, þakkaði viðurgjörning allan í Hrunamannahreppi og sagði síðasta fundi kjörtímabilsins slitið.

 

 

                                                                        Halla Guðmundsdóttir

                                                                        ritari Héraðsnefndar Árnesinga.

 

 

 

 

 

Eftirtaldir héraðsnefndarmenn sátu fundinn – allan eða að hluta:

 

Ragnheiður Hergeirsdóttir

Aldís Hafsteinsdóttir

Margeir Ingólfsson

Ragnar Magnússon

Gunnar Örn Marteinsson

Guðbjörg Jónsdóttir

Ingvar G. Ingvarsson

Páll Stefánsson

Birna Borg Sigurgeirsdóttir

Herdís Þórðardóttir

Ari B. Thorarensen

Elfa Dögg Þórðardóttir

Grímur Arnarson

Eyþór Arnalds

Gylfi Þorkelsson

Margrét Katrín Erlingsdóttir

Þorvaldur Guðmundsson

Aðalsteinn Sveinsson

Sigurður Ingi Jóhannsson

og

Ingibjörg Garðarsdóttir fjármálastjóri.





Til baka    






Deila
Til baka


Hrasnefnd rnesinga

Austurvegi 2, 800 Selfoss heradsnefnd@heradsnefndarnesinga.is