|
|
|
|
|
Sveitarstjórnir Bláskógabyggðar, Gaulverjabæjarhrepps, Grímsnes- og Grafningshrepps, Hrunamannahrepps, Hveragerðisbæjar, Skeiða- og Gnúpverjahrepps, Sveitarfélagsins Árborgar, Sveitarfélagsins Ölfuss og Flóahrepps gera með sér svofelldan SAMNING UM HÉRAÐSNEFND:
Sveitarstjórnir framangreindra sveitarfélaga hafa samþykkt að vera aðilar að Héraðsnefnd Árnesinga, sem starfar samkvæmt ákvæðum í 81. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998.
Merki Árnessýslu skal vera merki Héraðsnefndar Árnesinga.
Með samningi þessum fela aðildarsveitarfélögin héraðsnefndinni að fara með yfirstjórn eftirtalinna stofnana: # Byggða- og náttúrusafns Árnesinga # Héraðsskjalasafns Árnesinga # Listasafns Árnesinga og # Tónlistarskóla Árnesinga. Héraðsnefndin setur stofnununum samþykktir, þar sem kveðið skal á um markmið, verkefni og stjórnun viðkomandi stofnana. Héraðsnefnd kýs stjórnir til eins árs í senn, til þess að annast rekstur hverrar stofnunar fyrir sig og setur þeim erindisbréf. Héraðsnefnd setur stofnunum fjárhagsramma í fjárhagsáætlun, sbr. 7. gr., sem stjórn viðkomandi stofnunar skal starfa eftir. Auk þessara verkefna annast héraðsnefndin þau verkefni, sem varða öll aðildarsveitarfélögin og sveitarstjórnirnar fela henni samkvæmt sérstakri samþykkt allra sveitarstjórna aðildarsveitarfélaganna. Þá skal héraðsnefnd láta sig skipta sveitarstjórnarmál, sem varða héraðið sem heild, svo og tillögur um hvað eina sem verða má héraðinu til gagns. Kostnaður vegna héraðsnefndar greiðist úr héraðssjóði.
Sveitarstjórnir aðildarsveitarfélaganna skulu eigi síðar en 15. júlí á því ári, sem kosið er til sveitarstjórna, kjósa fulltrúa í héraðsnefnd til fjögurra ára. Kjörgengir eru aðalmenn í sveitarstjórnum og framkvæmdastjórar sveitarfélaga. Sveitarstjórnir kjósa einn fulltrúa fyrir hvert byrjað þúsund skv. íbúatölu sveitarfélags 1. desember árið fyrir sveitarstjórnarkosningar. Kjósa skal jafn marga varafulltrúa í héraðsnefnd úr hópi aðalmanna og varamanna í sveitarstjórn og framkvæmdastjóra sveitarfélaga.
Héraðsnefnd skal koma saman til fyrsta fundar eftir hverjar sveitarstjórnarkosningar eigi síðar en 30. júlí. Oddviti fjölmennasta aðildarsveitarfélagsins skal boða nefndina saman til fyrsta fundar, en aldursforseti héraðsnefndar setur fundinn og stýrir honum, uns oddviti nefndarinnar hefur verið kjörinn. Kjörtímabil oddvita er eitt ár. Kjósa skal varaoddvita til sama tíma.
Um fundarsköp héraðsnefndar gilda ákvæði sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, eftir því sem þau eiga við, sbr. II kafla laganna og sbr. fyrirmynd félagsmálaráðuneytisins að fundarsköpum sveitarstjórna. Sama er um réttindi og skyldur héraðsnefndarmanna, sbr. III kafla sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Fundur héraðsnefndar er því aðeins ályktunarhæfur, að ¾ hlutar kjörinna fulltrúa sé mættur. Teljist fundur ekki ályktunarhæfur skal boða til annars fundar innan þriggja vikna. Skal sá fundur ályktunarhæfur, þótt ekki sé mættur tilskilinn fjöldi fulltrúa, enda hamli veðurfar eða ófærð ekki fundarsókn. Við atkvæðagreiðslur ræður afl atkvæða, sbr. þó 3. mgr. 10. gr. og 1. mgr. 14. gr. Séu atkvæði jöfn fellur málið, en við kosningar ræður hlutkesti milli þeirra sem jöfn atkvæði hljóta. 7. gr. Reikningsár héraðsnefndar er almanaksárið. Héraðsráði, sbr. 8. gr., ber að semja frumvarp að fjárhagsáætlun fyrir héraðsnefnd og stofnanir hennar og leggja fyrir ársfund héraðsnefndar til afgreiðslu. Skal frumvarp að fjárhagsáætlun fylgja fundarboði. Samþykki allra sveitarstjórna aðildarsveitarfélaganna þarf til að ákvarðanir héraðsnefndar um fjárfestingar, eignabreytingar og ólögbundin útgjöld og skuldbindingar öðlist gildi. Um slík mál skal fjallað á tveimur fundum nefndarinnar með a.m.k. tveggja vikna millibili. Bera skal slík mál undir sveitarstjórnir aðildarsveitarfélaganna milli funda. Þó er héraðsnefnd heimilt að leggja allt að 3% af fjárhagsáætlun til félags- og menningarmála án þess að samþykki sveitarstjórna liggi fyrir. 8. gr. Á vorfundi skal héraðsráð leggja fyrir héraðsnefnd ársreikninga nefndarinnar fyrir liðið reikningsár til samþykktar og skulu reikningarnir hafa verið endurskoðaðir af löggiltum endurskoðanda sem nefndin ræður. Heimilt er héraðsnefnd að kjósa skoðunarmenn sbr. 69-70. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Jafnframt skal á ársfundi leggja fram til kynningar ársreikninga og ársskýrslur þeirra stofnana sem undir héraðsnefndina heyra, sbr. 3. gr. 9. gr. Sveitarfélög þau sem aðild eiga að héraðsnefnd, bera einfalda ábyrgð á fjárhagsskuldbindingum nefndarinnar í sameiningu. Innbyrðis skiptist ábyrgðin í hlutfalli við fólksfjölda 1. desember næst liðins árs, nema annað sé ákveðið varðandi einstök verkefni. 10. gr. Oddviti héraðsnefndar stjórnar fundum nefndarinnar. Nefndin kýs fundarritara úr sínum hópi eða ræður sérstakan fundarritara. Oddviti skal sjá um að fundargerðir séu skipulega færðar í sérstaka gerðabók, m.a. að þar séu skráð framkomin mál og hvaða afgreiðslu þau hljóta. Fundargerðir héraðsnefndar skulu sendar aðildarsveitarfélögunum ásamt fjárhagsáætlun og ársreikningum. 11. gr. Oddviti héraðsnefndar er framkvæmdastjóri héraðsnefndarinnar, nema annað sé ákveðið. Héraðsnefnd ákveður hver eða hverjir annist fjárreiður og bókhald nefndarinnar. 12. gr. Á haustfundi skal kjörinn oddviti til eins árs nema á kosningaári sbr. 5. Gr. Á sama fundi kýs héraðsnefnd héraðsráð, sem skipað skal tveimur fulltrúum úr hópi aðalmanna í héraðsnefnd auk oddvita, sem er formaður héraðsráðs. Varamenn skulu kosnir jafn margir. Héraðsráð er kjörið til eins árs í senn. Við kosningu í héraðsráð skal þess gætt að ávallt sé einn fulltrúi úr hópi héraðsnefndarfulltrúa Sveitarfélagsins Árborgar, annar úr hópi fulltrúa Hveragerðisbæjar og Sveitarfélagsins Ölfuss, en hinn þriðji úr hópi héraðsnefndarfulltrúa þeirra aðildarsveitarfélaga, sem hér eru ótalin. Héraðsráð starfar á milli funda héraðsnefndar og undirbýr mál fyrir héraðsnefndarfundi, semur m.a. frumvarp um fjárhagsáætlun, sbr. 2. mgr. 10. gr., og annast önnur mál, sem héraðsnefnd felur því. Um héraðsráð skulu gilda ákvæði IV. kafla sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998, eftir því sem við á. 13. gr. Í lok haustfundar héraðsnefndar skulu kosnar eftirtaldar starfsnefndir: Fjárhagsnefnd, allsherjarnefnd og mennta- og menningarmálanefnd. Auk þess skulu kosnar málefnanefndir til þess að fjalla um einstök mál, sem eru til umræðu og umfjöllunar héraðsnefndar, samkvæmt ákvörðun héraðsnefndar hverju sinni. Á kosningaári skal þó kosið í upphafi fundar. 14. gr. Tekjur héraðssjóðs eru árlegt framlag aðildarsveitarfélaganna skv. fjárhagsáætlun héraðsnefndar og aðrar tekjur sem til falla. Skal framlögum jafnað niður á aðildarsveitarfélögin að helmingi miðað við íbúafjölda 1. desember árið á undan og að helmingi miðað við tekjur sveitarsjóðs af útsvörum, fasteignasköttum og framlögum úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga næst liðið ár. Heimilt er héraðsnefnd að lækka álagningarstofn sveitarfélags, ef tekjur hafa ekki innheimst vegna gjaldþrota eða annarra ófyrirsjáanlegra ástæðna. Aðildarsveitarfélögin skulu greiða 1/12 hluta framlags fyrir 10. hvers mánaðar. Verði vanskil á greiðslu framlags greiðast dráttarvextir af vanskilafénu í samræmi við ákvæði 32. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofa sveitarfélaga. 15. gr. Samning þennan skal endurskoða í síðasta lagi innan 10 ára. Til að breytingar á samningnum öðlist gildi þurfa ¾ sveitarstjórna aðildarsveitarfélaganna að samþykkja þær. Gangi sveitarfélag úr héraðsnefnd gilda ákvæði 84. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Verði héraðsnefndin lögð niður skal fara eftir ákvæðum 85. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Fulltrúar neðangreindra sveitarfélaga samþykkja með undirskrift samning þennan og tekur samningurinn gildi 1. sept 2009. Við gildistöku samnings þessa fellur úr gildi samningur um Héraðsnefnd Árnesinga frá 29. apríl 2006. Ragnheiður Hergeirsdóttir Aldís Hafsteinsdóttir Margeir Ingólfsson Aðalsteinn Sveinsson Ingvar. H. Ingvarsson Sigurður Ingi Jóhannsson Gunnar Örn Marteinsson Ólafur Áki Ragnarsson (sign) Samningur þessi var undirritaður á 50. fundi Héraðsnefndar Árnesinga 29. okt. 2009 |