Saga Héraðsnefndar Árnesinga


Héraðsnefnd Árnesinga var stofnuð á Selfossi 13. október 1988 að tilhlutan Sambands sunnlenskra sveitarfélaga. Tók nefndin að flestu leyti við hlutverki Sýslunefndar Árnessýslu sem starfaði 1974 – 1988 er hún var lögð niður. Hélt hún sinn síðasta fund á stofnstað sínum, Kiðabergi í Grímsnesi, haustið 1988.
Þeir annmarkar voru á sýslunefndum að bæjarfélög gengu við stofnun sjálfkrafa úr sýslunefnd, og við stofnun Selfosskaupstaðar 1978 voru tengsl Selfoss við starf sýslunefndarinnar rofin. Munaði miklu um brotthvarf stærstu sveitarfélaganna. Einnig var umdeilt að sýslunefndarmenn voru kosnir beinni kosningu, en ekki af sveitarstjórnum. Þeir voru þá allt eins án nokkurra tengsla við sveitarstjórnir. Sveitarstjórnir voru sjálfráðar um þar hvort þær gengu í Héraðsnefnd Árnesinga, en svo fór að öll sveitarfélög í Árnesþingi gerðust stofnendur hennar. Í upphafi voru héraðsnefndarmenn 22.
Fyrsti oddviti Héraðsnefndar Árnesinga var Sigríður Jensdóttir, sem þá var einnig forseti bæjarstjórnar Selfoss. Oddviti stýrði einnig héraðsráði sem skipað var tveimur héraðsnefndarmönnum til viðbótar, og var annar fyrst valinn úr hópi dreifbýlismanna, en hinn úr þéttbýli. Héraðsráð kemur saman allt að því mánaðarlega, undirbýr mál í hendur héraðsnefndar en afgreiðir sum hin smærri mál. Á árum áður voru haldnir tveir héraðsnefndarfundir árlega, en nú er einn fundur haldinn, nema á kosningaári til sveitarstjórna. Oddviti er jafnframt framkvæmdastjóri héraðsnefndarinnar, og annast allar bréfaskriftir, fundarboð á héraðsráðs- og héraðsnefndarfundi og kemur fram fyrir hönd nefndarinnar út á við.
Þann 15. desember 1989 var samningur um Héraðsnefnd Árnesinga samþykktur af öllum héraðsnefndarmönnum. Var hann síðast uppfærður með áorðnum breytingum hinn 1. september 2009, samþykktur af öllum hlutaðeigandi sveitarfélögum, og má sjá hann í heild sinni undir öðrum lið á vefsíðu þessari.
Héraðsnefnd hefur yfirstjórn á mörgum verkefnum á menningarsviði og annast fjárveitingar til Byggða- og náttúrusafns Árnesinga, Listasafns Árnesinga og Héraðsskjalasafns Árnesinga. Tónlistarskóli Árnesinga er sjálfstæð rekstrareining sem borin er uppi af sveitarfélögunum, en héraðsnefnd kýs í skólanefnd og fer með æðstu stjórn skólans.
Núverandi oddviti Héraðsnefndar Árnesinga er Ragnheiður Hergeirsdóttir bæjarstjóri í Árborg. Í héraðsráði með henni eru Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði og Margeir Ingólfsson oddviti í Bláskógabyggð. Fjárhaldsmaður nefndarinnar er Ingibjörg Garðarsdóttir fjármálastjóri í Árborg.

heim